Allt stefnir í að stjórnarandstaðan vinni stórsigur í héraðskosningunum í Hong Kong sem fram fara í dag. Metkjörsókn var í kosningunum, 71% samanborið við 47% árið 2015. BBC greinir frá því að stjórnarandstæðingar hafi hlotið 201 af fyrsta 241 sætinu.