Leicester komst aftur á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni er liðið fór illa með West Ham á heimavelli, 4:1. Harvey Barnes og Ricardo Pereira komu Leicester í 2:0 í fyrri hálfleik, en Mark Noble minnkaði muninn úr víti snemma í seinni hálfleik.