Í gær var nemendum og foreldrum þeirra tilkynnt um að skólastarf myndi falla niður í Réttarholtsskóla í dag. Ekkert hefur verið þrifið þar síðan á föstudag en allir starfsmenn sem sinna þrifum eru í verkfalli. Skólastjóri skólans ætlar að þrífa hluta skólans svo starfið falli ekki alveg niður.