Þessar vikurnar er verið að sýna sænsku þáttaröðina Ísalög (Thin Ice) í Ríkissjónvarpinu. Tónlistarmaðurinn Biggi Hilmars gerir tónlistina í þáttunum sem hann vann að megnið af síðasta ári. Hann segist hafa fengið mikið traust frá framleiðendum sem hafi hjálpað mikið. „Ég fékk bara að fljúga,“ segir hann.