Útlit atvinnumála á Suðurnesjum hefur versnað hratt á undanförnum vikum. Atvinnuleysi á svæðinu mælist nú 15,4% og 17% í Reykjanesbæ en um 3.000 manns til viðbótar eru að nýta hlutabótaleiðina. Formaður VFSK gerir ráð fyrir að meirihluti félagsmanna í félaginu muni missa vinnuna eða nýta leiðina.