Frónbúar eru ýmsu vanir þegar kemur að veðurfari og vorhret ætti varla að koma mörgum á óvart en engu að síður er það alltaf jafn óvinsælt þegar snjókoman gerir vart við sig þegar fólk er farið að þrá sól og blíðu í lok maí. Hrollkalt og vetrarlegt var í Hjaltadal í morgun eins og myndskeiðið sýnir.