„Ég held að það segi sig sjálft að fólk á djamminu passar sig alveg örugglega ekki eins vel eins og aðrir,“ segir Þórólfur Guðnason um möguleikann á að lengja opnunartíma skemmtistaða og öldurhúsa. Mikill þrýstingur sé á lengingu en greinilegt sé að margir virði ekki tilmæli um sóttvarnir nú.