Joe Gomez, varnarmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, var gestur í Vellinum sem var á dagskrá Símans Sport í gærkvöldi eftir leik Tottenham og Everton. Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans og umsjónarmaður Vallarins, ræddi meðal annars við Gomez um Englandsmeistaratitilinn og mikilvægi stuðningsmanna Liverpool.