Vegfarendur sem áttu leið um Álftafjörð á Snæfellsnesi í gær komu að hópi grindhvala sem hafði rekið á land. Að sögn sjónarvotta voru dýrin 10 talsins og var lífsmark með þremur þeirra þegar fólkið bar að. Reynt var að vökva dýrin og gera þeim lífið bærilegra án árangurs.