Freyr Alexandersson, Margrét Lára Viðarsdóttir og Tómas Þór Þórðarson ræddu um Arsenal í Vellinum á Símanum sport í gærkvöld. Þrátt fyrir að Arsenal hafi byrjað tímabilið vel og unnið tvo fyrstu leiki sína í ensku úrvalsdeildinni segir Freyr að liðið þurfi annan miðjumann til að berjast um Englandsmeistaratitilinn.