Erlendir nemendur sem stunda nám í framhaldsskólum hérlendis og gengur vel eru gjarnan komnir lengra í fögum á borð við stærðfræði og eðlisfræði og geta miðlað sinni þekkingu til samnemenda sinna. Þetta er eitt af því sem Susan Rafik Hama komst að í doktorsrannsókn sinni á velgengni erlendra nema.