Í gegn um tíðina hafa á bilinu 4-6 nemendur sem hafa lokið fyrstu önn í lögreglunámi verið með ADHD. Að því loknu hafa þeir farið í læknisskoðun þar sem lagt er mat á hvort lyfjanotkun vegna þess gæti hamlað þeim í starfi. Þessu hefur nú verið breytt til mikilla hagsbóta fyrir fólk með ADHD.