Sólveig Ásgeirsdóttir bjargaði lífi bestu vinkonu sinnar, Súsönnu Helgadóttur, í júlí síðastliðnum þegar Súsanna fór í skyndilegt hjartastopp á heimili sínu. Sólveig, sem er Skyndihjálparmaður ársins 2020, hafði nýlega lokið námskeiði í skyndihjálp þegar hún var óvænt í heimsókn hjá vinkonu sinni.