„Það má ekkert fara úrskeiðis í þessu og þetta er alveg ótrúlega flókið raunverulega sem er að gerast þarna,“ segir Ari Kristinn Jónsson, rektor HR og fyrrum starfsmaður NASA, um lendingarferli Perserverance á Mars í kvöld. Nýrri tækni er beitt við lendinguna sem hefur ekki verið notuð áður.