Síðasta ferðalagið sem landvörðurinn Helga Hvanndal fór í áður en heimsfaraldurinn skall á var til Nepal. „Það er líklega eitt það magnaðasta sem ég hef gert, að vera þarna í Himalajafjöllunum,“ segir Helga, sem fór upp í grunnbúðir við Mt. Everest, í viðtali hjá Dóru Júlíu í Dagmálum.