Forseti Bandaríkjanna, Joe Biden, hefur kynnt áætlanir stjórnvalda um að búið verði að bólusetja 70% fullorðinna fyrir þjóðhátíðardag landsins, 4. júlí, og að fljótlega verði farið að bólusetja börn á aldrinum 12-15 ára fáist heimild lyfjaeftirlitsins til að bólusetja þau.