Yfir 80 prósent Japana eru á móti því að Ólympíuleikarnir, sem var frestað í fyrra vegna kórónuveirufaraldursins, verði haldnir í ár, samkvæmt könnun sem birt var síðastliðinn mánudag af japanska dagblaðinu Asahi Shimbun. Þá vilja 43 prósent þátttakenda að leikunum verði aflýst.