Fullorðnir sem greinast með ADHD velta því oft fyrir sér hversu sterk einkenni þurfi að vera til ráðlegt sé að hefja lyfjagjöf. Anna Dóra Steinþórsdóttir er sálfræðingur sem sérhæfir sig í ADHD-greiningum fullorðinna. Hún segir einkennin ólík og missterk. Það sem vegi þyngst sé þó hvernig einkennin séu hamlandi fyrir fólk.