Siggi Gunnars, útvarps- og tónlistarstjóri K100, hefur verið í fjölmiðlabransanum ansi lengi þrátt fyrir ungan aldur. 12 ára stofnaði Siggi sína fyrstu útvarpsstöð eftir stífar æfingar heima fyrir og var það útvarpsstöðin Jólahjól 104,9. Hann ræðir við Dóru Júlíu í Dagmálaþætti dagsins.