Íslenska TikTok-stjarnan Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, hitti YouTube-stjörnuna Logan Paul í gær en hann er með rúmlega tuttugu milljónir fylgjenda á bæði YouTube og Instagram. Árið 2018 sætti Youtube-stjarnan þó mikilli gagnrýni eftir að hafa birt myndskeið af líki. Í kjölfarið sleit YouTube viðskiptatengslum við hann.