Formaður SÁÁ fór í meðferð fyrir nítján árum. Hún var langt leidd af áfengisdrykkju og hafði ótal sinnum reynt að hætta en alltaf án árangurs. Anna Hildur Guðmundsdóttir er gestur Dagmála í dag og ræðir stöðu SÁÁ, vilja sinn til að halda áfram formennsku og síðast en ekki síst segir hún sögu sína.