Fráhald frá næringu líkamanum eðlilegt

Hallgerður Hauksdóttir er áhugakona um heilsusamlegt líferni. Hún stofnaði hópinn Föstusamfélagið á Facebook árið 2018 en Hallgerður hafði þá sökkt sér ofan í fræðilegan hluta á því að fasta. Síðan hefur hún tekið að sér að aðstoða fólk við að tileinka sér og fara í gegnum föstur. Hallgerður segir föstur ekki það sama og megrunarkúrar heldur séu þær lífstíll sem leiðir til þess að líkaminn getur nýtt sér eigin fituforða án þess að ganga á vöðva og án þess að minnka efnaskiptahraða líkamans.

Spila sem hljóðskrá:

Til baka á forsíðu Dagmáls »