Pakistanska lögreglan hefur handtekið 23 einstaklinga vegna sprengingar í bænahúsi í höfuðstöðvum lögreglunnar í borginni Peshawar á mánudag. Að minnsta kosti 101 létust.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2023/01/30/logreglumenn_a_medal_latinna/
Lögreglan rannsakar hvort að einstaklingar sem voru inn í bænahúsinu er sprengingin varð aðstoðuðu við að skipuleggja árásina.
Þá er talið að skipuleggjendurnir gætu átt tengsl við einstaklinga utan Pakistan en borgin er nærri landamærum Afganistan.