Að minnsta kosti sex létust er jarðskjálfti af stærðinni 6,4 reið yfir í Hatay-héraði í suðurhluta Tyrklands í gærkvöldi.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2023/02/20/annar_stor_skjalfti_i_tyrklandi/
Rúmar tvær vikur eru síðan rúmlega 44 þúsund manns létust eftir að skjálfti af stærðinni 7,8 reið yfir á svæðinu. Tugþúsundir eru enn heimilislausar.
BBC greinir frá því að þremur mínútum eftir að skjálftinn fannst í gær hafi riðið yfir 5,8 stiga skjálfti og í kjölfarið mælst 31 minniháttar eftirskjálftar.
Fáir eftir á svæðinu
Fahrettin Koca, heilbrigðisráðherra Tyrklands, greindi frá að 294 einstaklingar hafi særst, 18 af þeim alvarlega.
Talið er að tiltölulega fáir hafi látið lífið þar sem að fáir voru á svæðinu eftir jarðskjálftana 6. febrúar.
„Ég hélt að jörðin myndi rifna í sundur undir fótunum mínum,“ sagði íbúinn Muna al-Omar grátandi er hún hélt á sjö ára syni sínum í viðtali við Reuters. Hún hefur búið í tjaldi í miðborg Antakya eftir jarðskjálftanna í byrjun mánaðarins.
Talið er að um 470 einstaklingar hafi særst í Sýrlandi vegna skjálftans í gær en þeir fundust einnig í Egyptalandi og Líbanon.