Dusty mætir gríðarsterku liði í umspilinu

ÍÞRÓTTIR  | 15. mars | 10:55 
Næstkomandi föstudag mætir íslenska rafíþróttaliðið Dusty belgíska liðinu Sprout í umspili BLAST mótaraðinnar.

Næstkomandi föstudag mætir íslenska rafíþróttaliðið Dusty belgíska liðinu Sprout í umspili BLAST mótaraðinnar. Sprout er gríðarlega sterkt lið og skartar mörgum efnilegum leikmönnum auk þess að sitja í 37. sæti heimslistans í Counter-Strike.

Lið Dusty sigraði Ljósleiðaradeildina á síðasta tímabili og reynir nú fyrir sér á stærri vettvangi þar til næsta tímabil hefst.

Liðið hefur verið á flugi síðustu ár en spurning hvernig fer gegn mögnuðu liði Sprout. Leikurinn hefst klukkan 11.00 að íslenskum tíma næstkomandi föstudag.

Þorsteinn, fyrirliði Dusty, var viðmælandi í þáttunum SETTÖPP þar sem hann segir frá sögu sinni með Dusty og gefur innsýn í líf rafíþróttamannsins. Hægt er að horfa á þáttinn í fullri lengd hér:

https://www.mbl.is/sport/esport/2023/03/04/thurfa_ad_maeta_med_plan_en_ekki_bara_leika_ser/

Þættir