Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur heitið stuðningi við íbúa Mississippi en að minnsta kosti 25 eru látnir eftir að hvirfilbylur tætti sig í gegnum ríkið á föstudagskvöld.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2023/03/25/myndskeid_ur_lofti_synir_eydilegginguna/
ABC News greinir frá því að hvirfilbylurinn sé flokkaður á stigi fjögur af fimm mögulegum. Því hafi verið um að ræða sjaldgæft og afar kröftugt óveður. Einungis um 1% hvirfilbylja eru flokkaðir á stigi fjögur. Flestir eru á fyrsta stigi.
Fyrstu gögn sýna fram á að hvirfilbylurinn tætti sig í gegnum tæplega 100 kílómetra svæði á 70 mínútum.
„Það er eins og sprenging hafi sprungið á svæðinu,“ sagði John Brown hjá Rauða krossi Bandaríkjanna, í samtali við AFP-fréttaveituna. Þá líkt hann svæðinu við stríðssvæði.