Sérfræðingur í skuldaskilum segir ótímabært að ræða skilmála Icesave skuldarinnar fyrr en menn viti hvað fáist fyrir eignir Landsbankans. Ekki sé hægt að fullyrða um viðbrögð Breta og Hollendinga ef Íslendingar hafni samningnum en skynsamt fólk eigi að geta komist að skynsamlegri niðurstöðu.