Arsenal hefur stundum verið í vandræðum með að skora mörk í vetur en ekki gegn Newcastle í kvöld þegar liðið vann Newcastle á sannfærandi hátt, 3:0. Hér má sjá mörkin þrjú.
Fyrirliði Arsenal Pierre-Emerick Aubameyang hefur átt erfitt uppdráttar upp við markið í vetur en hann gerði tvö markanna í kvöld og það fyrra var sérlega glæsilegt. Bukayo Saka skoraði eitt eftir afar góðan undirbúning hjá Emile Smith-Rowe.
Mörkin eru í meðfylgjandi myndskeiði en leikurinn var sýndur beint á Símanum Sport.