mbl | sjónvarp

Efnilegasta tvíeyki landsins?

TÍMARITIÐ  | 2. nóvember | 18:44 
Hljómsveitin Kajak kom eins og þruma úr heiðskíru lofti inn í íslenskt tónlistarlíf á dögunum og héldu margir að um erlenda stórsveit væri að ræða þegar lag þeirra „Gold Crowned Eagle“ heyrðist fyrst í útvarpi. Meðlimir þessarar elektrónísku sveitar eru þeir Hreinn Elíasson og Sigurmon Hartmann.

Síðustu daga hafa nokkrir áhugaverðir tónlistarmenn mætt í Símaklefa Monitor og tekið lagið fyrir framan myndavélar. Um var að ræða svokallað „Live lounge“ þar sem flest böndin tóku eitt af sínum eigin lögum og eitt cover lag. Hljómsveitirnar koma úr ólíkum áttum og ættu allir að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Næstu daga munu upptökur af þessu spileríi streyma inn á vef Monitor og eru allir tónlistarunnendur því hvattir til þess að fylgjast vel með.

Hljómsveitin Kajak kom eins og þruma úr heiðskíru lofti inn í íslenskt tónlistarlíf á dögunum og héldu margir að um erlenda stórsveit væri að ræða þegar lag þeirra „Gold Crowned Eagle“ heyrðist fyrst í útvarpi. Meðlimir þessarar elektrónísku sveitar eru þeir Hreinn Elíasson og Sigurmon Hartmann Sigurðsson og í Símaklefa dagsins taka þeir lagið „Children Of The Sun“. Kajak spilar á Harlem í kvöld klukkan 21:30.

Öll upptaka fór fram í stúdíói Hljóðverks á Tunguhálsi, en þess má geta að Símaklefinn er örstutt frá Monitorstöðum og andar því hlýjum Airwaves straumum þar á milli.

 

Airwaves 2013
Loading