mbl | sjónvarp

Sein til að nýta okkur netmiðla

VIÐSKIPTI  | 17. desember | 17:22 
Frosti Jónsson, sérfræðingur hjá Birtingarhúsinu, er gestur vikunnar í Alkemistanum. Nýlega er farið að bjóða þjónustu sem kallast stafræn miðlun auglýsingaborða sem er nýlunda á íslenskum auglýsingamarkaði.

Gestur Viðars Garðarssonar í Alkemistanum þessa vikuna er Frosti Jónsson sérfræðingur hjá Birtingarhúsinu. Hann og félagar hans eru nýlega farnir að bjóða þjónustu sem kallast stafræn miðlun auglýsingaborða. Þetta er nýlunda á íslenskum auglýsingamarkaði og gefur auglýsendum möguleika á því að birta efni sitt á netinu með markvissum hætti. 

Segir Frosti að hlutdeild netmiðla á auglýsingamarkaði sé ótrúlega lítil miðað við það sem gerist í nágrannalöndum okkar. Að Íslendingar séu heldur seinir til að nýta sér netmiðla sem auglýsingamiðil, sérstaklega í ljósi þess hversu netvædd þjóðin er.

Alkemistinn
Alkemistinn er þáttur um markaðsmál og viðskipti. Viðar Garðarsson ræðir við fólk úr atvinnulífinu og fræðimenn á sviði viðskipta.
Loading