mbl | sjónvarp

„Allt í lagi að líða stundum illa“

FÓLKIÐ  | 12. október | 8:49 
Daria Richardsdóttir hefur búið á Íslandi í ellefu ár en hún var aðeins 58 kíló þegar hún flutti hingað til lands í leit að betra lífi. Daria byrjaði keppnina að krafti en í meðfylgjandi myndbroti úr næsta þætti ráðfærir hún sig við Gurrý þjálfara enda keppnin farin að taka á.

Daria Richardsdóttir hefur búið á Íslandi í ellefu ár en hún var aðeins 58 kíló þegar hún flutti hingað til lands í leit að betra lífi.

„Ég veit hvað það er mikil vinna að losa sig við öll þessi kíló og allt saman að ég held að ég byrji ekki aftur að éta eins og áður,“ segir Daria sem er meðal þátttakenda í Biggest Loser Ísland. Daria byrjaði keppnina af krafti en í meðfylgjandi myndbroti úr næsta þætti ráðfærir hún sig við Gurrý þjálfara enda keppnin farin að taka á.

„Ég sé það á æfingunum að þú ert að missa trúna,” segir Gurrý. Það dylst engum að keppnin tekur verulega á keppendur, bæði líkamlega og andlega. „Það er allt í lagi að líða stundum illa. Þetta er hardcore að vera hérna,“ segir Gurrý.

Í síðasta þætti var það Almar sem þurfti að kveðja en átökin halda áfram í næsta þætti í fjórðu þáttaröðinni af Biggest Loser Ísland sem sýndur verður í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans klukkan átta í kvöld. 

Biggest Loser
Í Biggest Loser Ísland glíma þátttakendur með yfirþyngd við það erfiða verkefni að snúa við blaðinu og taka upp nýjan lífsstíl sem einkennist af hollu mataræði og mikilli hreyfingu.
Loading