mbl | sjónvarp

Herbert sló í gegn með stjörnunum

FÓLKIÐ  | 11. mars | 11:30 
Eilífðar töffarinn Herbert Guðmundsson var sérstakur gestur í bingóþætti gærkvöldsins. Þar flutti hann tvo stórgóða slagara og sló algerlega í gegn.

Þjóðargersemin Herbert Guðmundsson var sérstakur gestur í bingóþætti Morgunblaðsins, mbl.is og K100 sem fram fór í beinni útsendingu hér á mbl.is og á Sjónvarpi Símans í gærkvöldi. 

Herbert flutti tvö af sínum allra bestu lögum í þættinum og sýndi það og sannaði fyrir bingóspilurum kvöldsins að hann hefur engu gleymt. Í spilaranum hér að ofan má sjá flutning Herberts á nýjasta smelli hans sem heitir Með stjörnunum. Alger negla hjá eilífðar töffaranum sem vert er að hlusta og horfa á svona rétt fyrir helgarfrí!

Loading