mbl | sjónvarp

Dætur Íslands: Agla María Albertsdóttir

ÍÞRÓTTIR  | 27. júní | 14:41 
Í sjöunda þætti af Dætrum Íslands heimsækjum við knattspyrnu- og landsliðskonuna Öglu Maríu Albertsdóttur, leikmann Häcken í sænsku úrvalsdeildinni.

Í sjöunda þætti af Dætrum Íslands heimsækjum við knattspyrnu- og landsliðskonuna Öglu Maríu Albertsdóttur, leikmann Häcken í sænsku úrvalsdeildinni.

Agla María, sem er 22 ára gömul, gekk til liðs við sænska félagið frá uppeldisfélagi sínu, Breiðabliki, í janúar á þessu ári og skrifaði hún undir þriggja ára samning við Häcken.

Hún hefur einnig leikið með Val og Stjörnunni hér á landi en hún hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari, 2016, 2018 og 2020, og tvívegis bikarmeistari, 2018 og 2021.

Alls á  hún að baki 111 leiki í efstu deild með Val, Stjörnunni og Breiðabliki, þar sem hún hefur skorað 56 mörk.

Agla María á að baki 46 A-landsleiki fyrir Ísland þar sem hún hefur skorað þrjú mörk en hún lék sinn fyrsta landsleik gegn Slóvakíu í apríl 2017, þá 17 ára gömul.

Hægt er að horfa á þáttinn um Öglu Maríu í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Loading