mbl | sjónvarp

Dætur Íslands: Alexandra Jóhannsdóttir

ÍÞRÓTTIR  | 20. júní | 14:40 
Í fimmta þætti af Dætrum Íslands heimsækjum við knattspyrnu- og landsliðskonuna Alexöndru Jóhannsdóttur, leikmann Eintracht Frankfurt í Þýskalandi.

Í fimmta þætti af Dætrum Íslands heimsækjum við knattspyrnu- og landsliðskonuna Alexöndru Jóhannsdóttur, leikmann Eintracht Frankfurt í Þýskalandi.

Alexandra, sem er 22 ára gömul, gekk til liðs við þýska félagið frá Breiðabliki í janúar 2021 og skrifaði hún undir tveggja ára samning í Þýskalandi.

Hún er uppalin hjá Haukum í Hafnarfirði en gekk til liðs við Breiðablik árið 2017. Hún varð tvívegis Íslandsmeistari með Blikum, 2018 og 2020, og einu sinni bikarmeistari, 2018.

Alexandra gekk til liðs við Breiðablik á nýjan leik í síðasta mánuði á láni frá Frankfurt en hún snýr aftur til Þýskalands að Evrópumótinu loknu. 

Alls á hún að baki 23 A-landsleiki þar sem hún hefur skorað þrjú mörk en hún lék sinn fyrsta landsleik í janúar 2019 gegn Skotlandi, þá 18 ára gömul.

Hægt er að horfa á þáttinn um Alexöndru í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Dætur Íslands
Loading