mbl | sjónvarp

Framleiða forláta leður úr ananaslaufum

MATUR  | 20. febrúar | 17:38 
Bandaríska fyrirtækið Dole og Ananas Anam hafa hafið geggjað samstarf þar sem Dole leggur til ananaslauf sem annars myndu ekki nýtast og úr þeim framleiðir Ananas Anam efni sem hlotið hefur nafið Piñatex og er leðurlíki.

Efnið kemur virkilega vel út og hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur um heim allan. Fyrirtæki og framleiðendur keppast við að nota það og meðal þeirra er íþróttafataframleiðandinn Nike.

Við hvetjum ykkur til að gúggla Piñatex en piña þýðir ananas á spænsku og tex vísar til textíls sem er efni.

Loading