mbl | sjónvarp

Hátíðarhangikjöt með besta meðlætinu

MATUR  | 9. desember | 19:01 
Það þarf ekki að vera flókið að galdra fram dýrindisjólamáltíð á mettíma.

Hátíðarhangikjöt með uppstúf og kartöflum, grænum baunum og Hátíðarrauðkáli

  • 1 hangilæri
  • forsoðnar kartöflur
  • uppstúfur
  • grænar baunir
  • Hátíðarrauðkál
  • laufabrauð

Aðferð:

Sjóðið hangikjötið samkvæmt leiðbeiningum. Passið að vatnið fljóti yfir kjötið. 

Setjið forsoðnar kartöflur í pott og uppstúfinn yfir. 

Þegar hangikjötið er soðið og búið að standa skal skera það í þunnar sneiðar.

Berið fram með kartöflum og uppstúf, Hátíðarrauðkáli, grænum baunum og norðlensku laufabrauði frá Gamla bakstri.

Uppskriftin kemur úr Hátíðarmatarblaðinu okkar sem unnið var í samstarfi við Hagkaup og hægt er að nálgast HÉR.

 

Loading