Michail Antonio skoraði mark West Ham United og Nicolo Zaniolo mark Aston Villa þegar liðin skildu jöfn, 1:1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.
Antonio kom Hömrunum yfir með glæsilegum skalla eftir laglega fyrirgjöf Vladimír Coufal frá hægri.
Aston Villa missteig sig í Lundúnum
Zaniolo jafnaði svo metin með skoti af stuttu færi eftir afar góðan undirbúning Moussa Diaby.
Mörkin tvö má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.