Manchester United fór upp um sjö sæti og situr nú í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir 3:1 sigur gegn Brighton á Old Trafford í gær.
Andreas Pereira kom United í 1:0 og Davy Propper tvöfaldaði forystu Manchester-liðsins þegar hann varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Lewis Dunk gaf Brighton von þegar hann minnkaði muninn en Marcus Rashford var ekki lengi að slökkva í þeim vonum þegar hann skoraði þriðja mark United.
Á meðfylgjandi myndskeiði má sjá mörkin og helstu atvikin úr leiknum.