Arnar Gunnlaugsson og Eiður Smári Guðjohnsen voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á Síminn sport í gærkvöld og rýndu þar í uppákomu Harrys Wilsons í leik Liverpool og Bournemouth um helgina.
Wilson er að láni hjá Bournemouth frá Liverpool en spilaði ekki leikinn vegna meiðsla. Hann var því uppi í stúku að fylgjast með sínum félögum, íklæddur Liverpool-úlpu. „Þetta er bara asnalegt, hann á bara að vera í Bournemouth-úlpu,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen um atvikið, „svo getur hann farið beint í Liverpool-úlpuna sína þegar hann kemur til baka.“
Bútinn úr þættinum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.