Mexíkóski knattspyrnumaðurinn Raúl Jiménez höfuðkúpubrotnaði í leik Wolves og Arsenal í október í fyrra. Eftir langa og stranga endurhæfingu er hann byrjaður að spila á ný og í dag skoraði hann sitt fyrsta mark eftir meiðslin erfiðu, sigurmarkið í 1:0-sigri Wolves gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni.
Framherjinn hefur sjálfur sagt að það sé ekkert annað en kraftaverk að hann sé byrjaður að spila aftur, enda var hann talinn í lífshættu fyrst um sinn eftir höfuðhöggið alvarlega.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.