mbl | sjónvarp

Steiktur steinbítur með sítrónu smjöri og íslenskri rófu

MATUR  | 10. október | 11:43 
innkaupalisti fyrir 4 undir 2000kr 800g steinbítur 1 sítróna 200g smjör 500g Nýjar kartöflur 1 rófa Góð olía Salt og

Hráefni

  • 800g steinbítur eða annar ódýr fiskur
  • 1 sítróna
  • 200g smjör
  • 500g Nýjar kartöflur
  • 1 rófa
  • Í eldhúsinu ef fólk á
  • eftir þörfum Góð olía
  • bragð bætt með Salt og pipar

Fyrir 4

innkaupalisti fyrir 4 undir 2000kr
800g steinbítur
1 sítróna
200g smjör
500g Nýjar kartöflur
1 rófa
Góð olía
Salt og pipar

Aðferð

Þegar búið er að verka fiskinn,skal skera hann í stykki og þerra hann með hreinu stykki. Nokkuð af smjöri er brúnað á pönnu, síðan er fiskstykkjunum bætt á heita pönnuna, kryddað með ögn af salti, þegar fiskurinn eru steiktur á neðri hliðinni, skal snúa honum við örstutt og svo leggja hann á fat, þá skal bæta smjöri  á pönnuna og þá er líka börkurinn og sneiðar úr sítrónunni bætt á pönnuna,ásamt rófu teningum og framreitt með steiktum fiskinum, gott að bera fram soðnar nýjar kartöflur. Það má stappa þær ögn með gaffli ef fólk vill.

Rófan er bæði hrá í sneiðum og skorin í litla teninga og bætt á pönnuna með ögn af ediki

Uppskrift: Gott, hollt og ódýrt

Gott, hollt & ódýrt
Eldaðu mat fyrir fjóra sem kostar undir 2000 krónum. Einnig er hægt að prenta út matseðil vikunnar sem og innkaupalista til að gera þér eldamennskuna enn þægilegri.
Loading