mbl | sjónvarp

Markið gegn Liverpool eitt af þeim bestu (myndskeið)

ÍÞRÓTTIR  | 3. mars | 11:10 
Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu hefur valið fimm bestu mörkin í 28. umferð deildarinnar sem hófst um síðustu helgi.

Enska úrvalsdeildin í knattspyrnu hefur valið fimm bestu mörkin í 28. umferð deildarinnar sem hófst um síðustu helgi. Umferðinni er hins vegar ekki lokið en Aston Villa og Sheffield United eiga enn þá eftir að mætast, líkt og Manchester City og Arsenal, en leiktími fyrir þessa tvo leiki hefur ekki enn þá verið staðfestur.

Stærstu úrslitin um helgina áttu sér stað á Vicarage Road, heimavelli Watford, þar sem Watford vann 3:0-sigur gegn toppliði Liverpool. Þetta var fyrsti tapleikur Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu en Senegalinn Ismaila Sarr reyndist Liverpool-mönnum erfiður. Hann skoraði tvívegis í leiknum og var seinna mark hans eitt af mörkum umferðarinnar.

 

Grillþættir matarvefsins
Grillþættir matarvefsins
Loading