mbl | sjónvarp

Svívirðilega góðar grillaðar kartöflur fylltar með beikoni og osti

MATUR  | 21. júlí | 9:03 
Ef það er eitthvað sem við elskum þá eru það góðar bakaðar kartöflur.

Ef það er eitthvað sem við elskum þá eru það góðar bakaðar kartöflur. Þær eru nánast jafn mikilvægar og kjötið sjálft enda bragðast þær unaðslega - ekki síst þegar búið er að bragðbæta þær með hinum ýmsu aðferðum eins og hér er gert. Himneskar kartöflur myndi einhver segja og við tökum heilshugar undir það. 

Grillaðar kartöflur fylltar með beikoni og osti

  • Kartöflur
  • Beikon
  • Paprika
  • Vorlaukur
  • Ólífuolía
  • Salt 
  • Piparostur frá Örnu
  • 2 msk. rjómaostur
  • Kóríander
  • Sýrður rjómi

Aðferð:

  1. Þetta er ein af þessum frjálslegu uppskriftum þar sem þér er það í sjálfvald sett hversu mikið af hráefnum þú notar hverju sinni. Eina sem við ráðleggjum er að vera ekki spar á beikonið. 
  2. Byrjið á að setja kartöflurnar í álpappír og á grillið. 
  3. Skerið paprikuna og vorlaukinn niður í eins stóra bita og kostur er. Penslið með ólífuolíu og saltið. 
  4. Grillið paprikuna, vorlaukinn og beikonið. Takið því næst af grillinu og skerið niður í bita. Saxið niður smá kóríander. 
  5. Takið kartöflurnar af grillinu og skerið kross í þær. Opnið kartöflurnar með því að þrýsta henni saman og skafið upp úr henni með skeið. 
  6. Blandið saman í skál og myljið piparostinn yfir. Saltið og piprið. 
  7. Setjið aftur í kartöfluna og út á grillið aftur. 
  8. Áður en kartöflurnar eru bornar fram skal setja sýrðan rjóma ofan á þær og smá saxað kóríander til skrauts. 
Loading