mbl | sjónvarp

Gerðu jóga með Evu Dögg

SMARTLAND  | 4. nóvember | 6:00 
Heima­hreyf­ing dags­ins er jógaæfing þar sem Eva Dögg leiðbeinir fólki í að gera flæðandi jógaæfingar sem liðka líkamann og styrkja. Æfingar sem endurnæra og fylla þátttakendur orku og vellíðan.

Heima­hreyf­ing dags­ins er jógaæfing þar sem Eva Dögg leiðbeinir fólki í að gera flæðandi jógaæfingar sem liðka líkamann og styrkja. Æfingar sem endurnæra og fylla þátttakendur orku og vellíðan.

Næstu vik­ur taka mbl.is og Hreyf­ing hönd­um sam­an og koma með lík­ams­rækt­ina heim í stofu. Alls verða tíu þætt­ir sýnd­ir á mbl.is þar sem farið er yfir fjöl­breytt­ar æf­ing­ar sem hægt er að gera heima.

Nýir þætti­r eru frum­sýnd­ir á mánu­dags-, miðviku­dags- og föstu­dags­morgn­um. Þjálf­ar­ar Hreyf­ing­ar leiða áhuga­sama í gegn­um fjöl­breytt­ar æf­ing­ar sem eru sér­stak­lega sam­sett­ar til að þjálfa helstu vöðva­hópa lík­am­ans, bæta vellíðan og auka þol.

Meðal æf­inga eru styrktaræf­ing­ar, jóga, dans, hug­leiðsla, teygj­ur, þolæf­ing­ar og píla­tes. Þætt­irn­ir eru í boði Hreyf­ing­ar, Hleðslu og Flóri­dana hér á mbl.is. 

Loading