mbl | sjónvarp

Gerðu pilates æfingar með Láru Stefáns

SMARTLAND  | 11. nóvember | 6:00 
Pílateskerfið styrkir miðju líkamans, djúpvöðva kviðarins, rass, læri, mjaðmir og hjálpar til við að leiðrétta líkamsstöðuna. Æfingakerfið hefur reynst góð forvörn gegn meiðslum og verður gjarnan lífsstíll fyrir þá sem byrja að stunda það. Lára Stefánsdóttir þjálfari hjá Hreyfingu sýnir hvernig á að bera sig að.

Pílateskerfið styrkir miðju líkamans, djúpvöðva kviðarins, rass, læri, mjaðmir og hjálpar til við að leiðrétta líkamsstöðuna. Æfingakerfið hefur reynst góð forvörn gegn meiðslum og verður gjarnan lífsstíll fyrir þá sem byrja að stunda það. Lára Stefánsdóttir þjálfari hjá Hreyfingu sýnir hvernig á að bera sig að í Hreyfingarþætti dagsins.

Æfingarnar krefjast einbeitingar og stjórnar á hreyfingum út frá miðju líkamans. Flæði, öndun og jafnvægi eru helstu einkunnarorð pílates, sem er frábært æfingakerfi fyrir konur og karla á öllum aldri.

Þessa dag­ana taka mbl.is og Hreyf­ing hönd­um sam­an og koma með lík­ams­rækt­ina heim í stofu. Alls verða tíu þætt­ir sýnd­ir á mbl.is þar sem farið er yfir fjöl­breytt­ar æf­ing­ar sem hægt er að gera heima. Nýir þætti­r eru frum­sýnd­ir á mánu­dags-, miðviku­dags- og föstu­dags­morgn­um. Þjálf­ar­ar Hreyf­ing­ar leiða áhuga­sama í gegn­um fjöl­breytt­ar æf­ing­ar sem eru sér­stak­lega sam­sett­ar til að þjálfa helstu vöðva­hópa lík­am­ans og auka vellíðan og þol.

Meðal æf­inga eru styrktaræf­ing­ar, jóga, dans, hug­leiðsla, teygj­ur, þolæf­ing­ar og píla­tes. Þætt­irn­ir eru í boði Hreyf­ing­ar, Hleðslu og Flóri­dana hér á mbl.is.

Loading