mbl | sjónvarp

Synir Íslands: Aron Pálmarsson

ÍÞRÓTTIR  | 12. janúar | 6:00 
Í fimmta þætti af Sonum Íslands heimsækjum við handboltamanninn og landsliðsfyrirliðann Aron Pálmarsson, leikmann Aalborgar í Danmörku.

Í fimmta þætti af Sonum Íslands heimsækjum við handboltamanninn og landsliðsfyrirliðann Aron Pálmarsson, leikmann Aalborgar í Danmörku.

Aron, sem er 32 ára gamall, gekk til liðs við Aalborg sumarið 2021 eftir fjögur tímabil í herbúðum spænska stórliðsins Barcelona þar sem hann varð fjórum sinnum Spánarmeistari g einu sinni Evrópumeistari.

Aron er uppalinn í FH en hélt út í atvinnumennsku árið 2009 þegar hann samdi við þýska stórliðið Kiel þar sem hann varð fimm sinnum Þýskalandsmeistari og tvívegis Evrópumeistari.

Eftir sex tímabil í Þýskalandi lá leiðin til Veszprém í Ungverjalandi þar sem hann lék frá 20015 til 2017 en hann varð tvívegis ungverskur meistari með liðinu.

Aron lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Belgíu í undankeppni EM árið 2008 en alls á hann að baki 159 landsleiki þar sem hann hefur skorað 623 mörk. Hann er á leið á sitt þrettánda stórmót með landsliðinu.

Stórskyttan var útnefnd íþróttamaður ársins 2012 af samtökum íþróttafréttamanna og þá vann hann til bronsverðlauna með landsliðinu á EM í Austurríki árið 2010.

Hægt er að horfa á þáttinn um Aron í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan eða á vefsíðu þáttanna, mbl.is/sport/synir-islands.

Loading