mbl | sjónvarp

Geimvera og leynileg áform Úlfs Úlfs

FÓLKIÐ  | 7. febrúar | 8:00 
Rappsveitin Úlfur Úlfur frumflutti lagið Geimvera í The Voice. Geimvera er hluti af lagi sem verður á næstu plötu sveitarinnar en ekkert meira fékkst upp um það mál. „Þetta lag hefur mikla þýðingu fyrir okkur sem hljómsveit. Við viljum ekki gefa upp meira en fólki er velkomið að túlka það á sinn hátt.“

Rappsveitin Úlfur Úlfur frumflutti lagið Geimvera í sjónvarpsþáttunum The Voice Ísland, en Arnar Freyr Frostason er bæði hluti af sveitinni og aðstoðarþjálfari í The Voice.

Geimvera er hlut af lagi sem verður á næstu plötu að sögn Helga Sæmundar Guðmundssonar í Úlfur Úlfur, en hann vildi ekkert gefa upp um það meira.

„Þetta lag hefur mikla þýðingu fyrir okkur sem hljómsveit. Við viljum ekki gefa upp meira en fólki er velkomið að túlka það á sinn hátt. Þetta mun skýrast með tímanum.“

The Voice
The Voice er einn vinsælasti hæfileikaþáttur í heimi og er nú kominn til Íslands á vegum Skjáeins
Loading