Annar hver Breti telur trúarbrögð skaðleg

AP

Næstum því annar hver Breti telur að trúarbrögð hafi skaðleg áhrif, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Einungis 17% aðspurðra töldu trúarbrögð vera til bóta. Úrtakið var 2.200 manns. Yfir helmingur kvaðst trúa á Guð „eða eitthvað.“

Það var fyrirtækið YouGov sem gerði könnunina fyrir sjónvarpsmanninn og rithöfundinn John Humphrys. 42% þátttakenda kváðust telja trúarbrögð hafa skaðleg áhrif.

„Ein ástæðan kann að vera sú mikla athygli sem fáeinir brjálaðir múllar hafa fengið með því að útbreiða hatur,“ segir Humphrys í nýrri bók sinni, In God We Doubt, en útdráttur úr henni birtist í Sunday Times News Review, að því er TimesOnline greinir frá.

Einungis 16% þátttakenda í könnuninni kölluðu sig guðleysingja; 28% sögðust trúa á Guð; 26% sögðust trúa á „eitthvað,“ en voru ekki alveg viss um hvað það væri; og 9% kölluðu sig efasemdamenn, og kváðust telja að ekkert yrði vitað með vissu um tilvist guðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert