Stjórnvöld vilja heimila að nota stofnfrumur til rannsókna

Stofnfruma tekin úr fósturvísi
Stofnfruma tekin úr fósturvísi AP

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, mun á næstunni leggja fram frumvarp til laga sem felur í sér að heimilt verður að nýta stofnfrumur til rannsókna. Gert er ráð fyrir að heimilt verði að nota svonefnda umframfósturvísa til að búa til stofnfrumulínur sem nýst geta til lækninga eða til að afla þekkingar í líf- og læknisfræði.

Fram kemur á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins, að ríkisstjórnin hafi samþykkt frumvarpið fyrir sitt leyti. Gert er ráð fyrir því í frumvarpinu að heimilt verði í undantekningartilvikum, þ.e. þegar ekki er talið unnt að ná sama árangri með notkun umframfósturvísa eða með öðrum hætti, að framkvæma megi kjarnaflutning í þeim tilgangi að búa til stofnfrumulínur sem nýst geta til lækninga eða til að afla þekkingar í líf- og læknisfræði.

Kjarnaflutningur er sú aðferð sem notuð er við einræktun og felst í því að kjarni er fjarlægður úr eggfrumu konu og í stað hans komið fyrir kjarna úr líkamsfrumu. Við þetta verður til fruma sem hefur sambærilega eiginleika og frjóvguð eggfruma eða fósturvísir. Ráðuneytið segir, að með þessu sé í engu vikið frá ótvíræðu banni núgildandi laga við kjarnaflutningi í æxlunartilgangi, þ.e. í þeim tilgangi að einrækta manneskju.

Frumvarpið er samið af nefnd sem skipuð var af heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra árið 2005 til að fjalla um nýtingu stofnfruma til rannsókna og lækninga og semja drög að frumvarpi til laga um stofnfrumurannsóknir. Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu var skipaður formaður nefndarinnar en aðrir nefndarmenn voru: Sigurður Guðmundsson, landlæknir, Magnús Karl Magnússon, læknir, Björn Guðbjörnsson, læknir, Þórarinn Guðjónsson, frumulíffræðingur, Ingileif Jónsdóttir, ónæmisfræðingur, Vilhjálmur Árnason, prófessor, Sólveig Anna Bóasdóttir, guðfræðingur og Jóhann Hjartarson, lögfræðingur. Starfsmaður nefndarinnar var Ágúst Geir Ágústsson, lögfræðingur.

Frumvarp um stofnfrumurannsóknir

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert