Halastjarna orðin umfangsmeiri en sólin

Holmes-halastjarnan séð með sjónauka.
Holmes-halastjarnan séð með sjónauka. Reuters

Halastjarna sem glatt hefur margan áhugastjörnuskoðarann undanfarnar vikur er nú orðin umfangsmeiri en sólin, eftir að mikil sprenging varð í stjörnunni. Má sjá þetta greinilega á samanburðarmyndum frá NASA. Stjörnufræðingar við Háskólann á Hawaii segja halastjörnuna orðna umfangsmesta hlutinn í sólkerfinu.

Sólin er þó lang-massamesti hluturinn í sólkerfinu, en halastjarnan, sem heitir Holmes, hefur losað svo mikið gas og ryk að heildarumfang andrúmslofts hennar er orðið stærra en þvermál sólarinnar.

Samkvæmt mælingum sem gerðar voru í Stjörnurannsóknastöð Háskólans á Hawaii fyrir viku var þvermál hjúps halastjörnunnar, eða höfuðs hennar, 1,4 milljónir kílómetra, en þvermál sólarinnar er 1,392 kílómetrar.

Enn má greina Holmes með berum augum hátt á norðausturhimni.

Samanburðarmynd

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert